Bandaríkjaher fór um borð í íranskt olíutankskip

Skipið var á Ómanflóa þegar bandarískir sjóliðar fóru um borð.RÚV / Sigurður Kristján ÞórissonBandaríkjaher fór um borð í olíutankskip á Ómanflóa í gær. Skipið siglir undir írönskum fána.Í tilkynningu sem Aðgerðarstjórn Bandaríkjahers (CENTCOM) birti á samfélagsmiðlinum X, kemur fram að áhöfn skipsins sé grunuð um að hafa ætlað að brjóta herkví Bandaríkjanna á írönskum höfnum.Bandarískir sjóliðar gerðu leit um borð og skipuðu áhöfn þess að breyta stefnu skipsins, samkvæmt færslu bandaríska hersins. Bandaríkjaher hefur skipað 91 skipi að breyta siglingaleið sinni svo herkví Bandaríkjamanna sé virt.
Bandaríkjaher fór um borð í íranskt olíutankskip
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd