Aðalhagfræðingur Landsbankans og dósent í viðskiptafræði við Háskóla Íslands eru á öndverðum meiði um stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var um í dag. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 25 punkta í morgun. Þeir eru nú komnir upp í 7,75 prósent.Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir hækkunina rökrétta, það þurfi að grípa í taumana. „Við þurfum að gera það þó svo að það bitni á kólnandi hagkerfi,“ segir hún.Seðlabankinn sé með þessari hækkun að reyna að hafa áhrif á verðbólguvæntingar. Verðbólgan sem Íslendingar kljáist við núna komi einna helst erlendis frá vegna átaka í Miðausturlöndum.„Og það er náttúrulega mjög erfitt að reyna að hafa áhrif á það,“ segir Una. „En það sem seðlabankinn getur haft áhrif á, það eru verðbólguvæntingarnar. Og þá er hann að reyna að koma í