Fatahönnunarfélag Íslands stóð fyrir sýningu á hönnunarmars. Á sýningunni var saga íslenskrar fatahönnunar frá 2000 til 2015 rakin.Fatahönnunarfélagið var stofnað árið 2001 og því var ákveðið að hafa upphafspunkt sýningarinnar um síðustu aldamót.Ragna Sigríður Bjarnadóttir, varaformaður Fatahönnunarfélags Íslands, segir að mikið grúsk hafi falist í verkefninu.„Eins og að fara í gegnum tímarit.is og bara sjá hvað er til af heimildum um íslenska fatahönnun því það er í raun bara mjög lítið til um fagið.“Mikil straumhvörf urðu í íslenskri fatahönnun í lok 10. áratugarins og í upphafi 21. aldarinnar og má segja að fatahönnun hafi þá fyrst verið viðurkennd sem fag hér á landi. Kennsla hófst í greininni í Listaháskóla Íslands og starfsheitið hönnuður varð til.