Bóluefni gegn ebólu gæti tekið níu mánuði í þróun

Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnun (WHO) gæti tekið allt að níu mánuði að þróa bóluefni gegn ebólufaraldrinum sem nú geisar í Afríku.Flestir eru smitaðir af bundibugyo-afbrigði ebóluveirunnar. Afbrigðið hefur ekki sést í rúman áratug og það eru hvorki til lyf né bóluefni gegn því. Dánartíðni afbrigðisins er 30-50%.Tvö hugsanleg bóluefni gegn Bundibugyo-afbrigðinu eru í þróun, en hvorugt þeirra er komið í klínískar rannsóknir, að sögn Dr. Vasee Moorthy, ráðgjafa hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnun. NEYÐARÁSTAND EN EKKI HEIMSFARALDUR Tedros Adhanom Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar, segir að grunur sé um að 600 hafi smitast af ebólu, af þeim hafi 139 látist. Búist er við að smitum fjölgi töluvert í ljósi þess hvað tekur langan tíma að greina veiruna.Alþjóðaheilbrigð
Bóluefni gegn ebólu gæti tekið níu mánuði í þróun
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd