Þörf er á að fara í ákveðnar reglugerðarbreytingar til að samræma störf slökkviliða á Íslandi við störf slökkviliða annars staðar á Norðurlöndunum. Þetta verður til þess að einfalda störf slökkviliða sem og að auðvelda þeim slökkviliðum á landinu sem ekki hafa burði eða fjármagn til að uppfylla ítrustu kröfur.