Bifreið var ekið á hús í umdæmi lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu í dag og var ökumaður fluttur á sjúkrahús til frekari skoðunar en meiðsli hans þó minni háttar. Þetta kemur fram í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 05 til 17 í dag.