Eigandi lúxussnekkjunnar stefnir ríkinu og Gæslunni

Félagið La Datcha Marine X Ltd., skráð á Seychelles-eyjum, hefur stefnt íslenska ríkinu og Landhelgisgæslunni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Félagið á og rekur lúxussnekkjuna La Datcha, sem í mars var meinað leggjast að bryggju á Akureyri vegna tengsla við Rússa. Krafa félagsins fyrir dómi er að sú ákvörðun verði felld úr gildi, að sögn Gunnars Sturlusonar, lögmanns félagsins. HLUTI AF ÞVINGUNARAÐGERÐUM GEGN RÚSSUM Sigla átti snekkjunni til hafnar á Akureyri 21. mars. Snekkjan siglir í dag undir fána Panama og var á leið til Akureyrar frá Istanbúl með 26 manns um borð. Skipið sigldi hins vegar undir rússneskum fána frá því í apríl 2021 fram í september 2022, og af þeim sökum ákvað Landhelgisgæslan að meina því að koma í höfn. Það var gert á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi fyrir
Eigandi lúxussnekkjunnar stefnir ríkinu og Gæslunni
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd