Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemd við kaup Nova klúbbsins á Ofar, gert er ráð fyrir því að frágangur viðskiptanna fari fram á næstu vikum. Þetta kemur fram í tilkynningu Nova klúbbsins. Í tilkynningunni kemur fram að eftirlitið telji ekki tilefni til frekari rannsóknar eða úthlutunar vegna kaupanna. Að kaupunum frágengnum mun Ofar hf. teljast hluti af samstæðu Nova-klúbbsins hf. frá og með kaupsamningsdegi, 20. febrúar 2026. Í upprunalegri tilkynnningu segir að Nova og Ofar verði rekin í sitt hvoru lagi, hvort undir sínu vörumerki. Þá liggi tækifæri breytinganna meðal annars í auknu vöruframboði og krosssölu í ljósi ólíkra markhópa félaganna tveggja.