Aðstoðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Hafnarfjarðarstöðvar, var óskað í dag vegna slyss og reyndist maður þar hafa klemmst undir rútu. Þetta kemur fram í yfirliti lögreglu yfir verkefni dagsins frá klukkan fimm í morgun til jafnlengdar síðdegis.