Formlegar meirihlutaviðræður Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ og Sjálfstæðisflokks og óháðra hafa gengið vel og enginn málefnalegur ágreiningur hefur komið upp í viðræðum enn sem komið er. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Svavari Grétarssyni, oddvita S-listans, og Hauki Andreassyni, oddvita Sjálfstæðismanna.Báðir flokkar hafi lagt áherslu á að vanda vel til verks til að styrkja stöðu Suðurnesjabæjar og vinna áfram að sameiningu byggðakjarnanna tveggja, Sandgerðis og Garðs, í Suðurnesjabæ.„Ef sami taktur heldur áfram í viðræðunum má gera ráð fyrir því að málefnasamningur verði tilbúinn í næstu viku þar sem helstu verkefni kjörtímabilsins munu liggja fyrir ásamt skiptingu hlutverka og nefnda.“ SUÐURNESJABÆR – LOKATÖLUR Lokatölur frá 17. maí 2026 kl. 00:01 Nánari greiningu má finna