Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í dag kröfu konu, sem sætir ákæru fyrir fjölda afbrota gegn þremur mönnum og aðstandendum þeirra, um að réttarhöld yrðu lokuð. Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir eru á sjöunda tug.Þetta staðfestir Helga Vala Helgadóttir Bachmann, lögmaður konunnar, í samtali við fréttastofu.Konan var ákærð fyrir umsáturseinelti, rangar sakagiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir og barnaverndarlagabrot. Brotin beindust gegn þremur mönnum og dætrum tveggja þeirra en hún birti einnig falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu í apríl.Við uppkvaðningu úrskurðarins í dag kom fram að málið yrði ekki flutt fyrir dómstólum fyrr en í haust. Gert er ráð fyrir því að aðalmeðferð þess fari fram í september eða október.