Mjög lítil áhætta á Íslandi vegna ebólufaraldurs í Mið-Afríku

Sóttvarnalæknir telur líkur á ebólusmiti af völdum Bundibugyo-veirunnar á Íslandi mjög litlar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef embættis landlæknis.Faraldur af völdum veirunnar hefur geisað undanfarnar vikur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Úganda. Grunur er um yfir 500 tilfelli og 130 dauðsföll, flest í Ituri-héraði Kongó. Þann 17. maí lýsti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin faraldrinum yfir sem bráðri ógn við lýðheilsu þjóða. Í tilkynningu landlæknis segir að slík yfirlýsing þýði ekki að um heimsfaraldur sé að ræða heldur sé hún til þess gerð að efla alþjóðlega samhæfingu og stuðning við þau ríki sem fyrir áhrifum veirunnar verða.Sóttvarnarstofnun Evrópu (ECDC) metur litlar líkur á smiti hjá einstaklingum frá ESB og EES sem búa í eða ferðast til Ituri-héraðs. Mjög litlar líkur eru tald
Mjög lítil áhætta á Íslandi vegna ebólufaraldurs í Mið-Afríku
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd