Samfylkingin gjörsigraði í krakkakosningum á Akureyri

Krakkakosningar voru haldnar í grunnskólum Akureyrarbæjar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Alls tóku 677 krakkar þátt í kosningunum, í öllum skólum Akureyrar nema í Hrísey þar sem ekki náðist að halda kosningu.Niðurstöðurnar voru frábrugðnar úrslitum sveitarstjórnarkosninganna sjálfra en Samfylkingin fékk ríflega 30% atkvæða og var langstærsti flokkurinn. Í kjölfarið komu síðan Viðreisn og Miðflokkurinn með rúm 13% og L-listinn hlaut 11,23% kosningu.Framsóknarflokkurinn kom verst út úr krakkakosningunni með aðeins 3,55% atkvæða og Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 6,8%.
Samfylkingin gjörsigraði í krakkakosningum á Akureyri
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd