Dómari við Héraðsdóm Reykjaness hafnaði kröfu lögmanns Írisar Helgu Jónatansdóttur sem hefur verið ákærð fyrir umsáturseinelti, brot á barnaverndarlögum, rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir og ærumeiðandi aðdróttanir. Farið var fram á lokuð réttarhöld við þingfestingu málsins í síðustu viku þar sem Íris Helga neitaði jafnframt alfarið sök í þeim 68 ákæruliðum sem voru listaðir upp í sautján blaðsíðna ákæru á hendur...