Fjórir karlmenn, tveir Króatar, Pólverji og Íslendingur, hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir stórfelld fíkniefnabrot. Annar Króatinn, Antonio Kastellana, hlaut þyngstan dóm, þriggja ára fangelsi. Mennirnir sögðust einfaldlega hafa verið að gera félögum sínum greiða þegar þeir frömdu brotin.