Meirihluti á Akureyri í höfn – Ásthildur hætt sem bæjarstjóri

Heimildir fréttastofu herma að málefnasamningur um nýtt meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og L-listans verði kynntur á föstudaginn. Flokkarnir hófu viðræður strax á sunnudagsmorgun um samstarf og hefur verið góður gangur í viðræðunum.Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur Akureyrar og þar á eftir L-listinn. Framsóknarflokkurinn er fjórði stærsti flokkurinn en allir listarnir fengu tvo fulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum liðna helgi. Samfylkingin fékk einnig tvo fulltrúa kjörna en fengu ekki sæti við borðið í meirihlutaviðræðum.Miðflokkurinn starfaði í meirihluta með L-lista og Sjálfstæðisflokki á síðasta kjörtímabili en sökum þess að L-listinn tapaði einum fulltrúa í kosningunum féll sá meirihluti. ÚRSLIT KOSNINGANNA Á AKUREYRI Sveitarstjórnarkosningar 20
Meirihluti á Akureyri í höfn – Ásthildur hætt sem bæjarstjóri
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd