Jarðskjálfti reið yfir Kaupmannahöfn í dag, upp úr klukkan 16 að staðartíma, rúmlega 14 að íslenskum tíma.Í frétt DR, danska ríkisútvarpsins, er haft eftir lögreglumanni að skjálftinn hafi verið að styrkleika 4,2.Helga Fanney, Þorbjarnardóttir, gullsmíðanemi sem býr í Refshaleøen- hverfi, segist hafa verið að þvo þvott þegar skjálftinn reið yfir. Hún segist fyrst hafa haldið að þetta væru læti vegna framkvæmda í nágrenninu en svo rann fljótt upp fyrir henni hvað var.Ég sendi skilaboð á nokkrar vinkinur mínar að ég hafi fundið skjálfta, en það trúði mer enginn. En ég veit alveg hvernig jarðskjálftar eru eftir að hafa fundið þá oft heima síðustu ár.“Fréttin verður uppfærð...