Jarðskjálfti reið yfir Kaupmannahöfn um klukkan 14:15 en jarðskjálftar eru afar fátíðir þar í borg. Eftir því sem lögreglan í borginni kemst næst var jarðskjálftinn af stærðinni 4,2. Íslendingar sem fréttastofa hefur rætt við segja borgarbúum nokkuð brugðið.