Þríhliða samtal til að sporna gegn uppsögn samninga

Forystumenn ríkisins og aðila vinnumarkaðarins ætla að hefja þríhliða samtal með það að markmiði að forsendur kjarasamninga haldi í haust. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ætla að leita leiða til að hemja verðbólgu og láta greina stöðuna.Búið er að skipa stýrihóp með fulltrúum forsætisráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Einnig er búið að skipa þrjá undirhópa og eiga BSRB, BHM, KÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga fulltrúa í tveimur þeirra.Stýrihópurinn á meðal annars að meta áhrif stríðsins við Persaflóa á verðlagsþróun hér.Einn undirhópurinn á að
Þríhliða samtal til að sporna gegn uppsögn samninga
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd