Gagnrýna skamman fyrirvara fyrir lokun yfir Jökulsá á Fjöllum

Unnið verður að viðhaldi við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum 26. maí til 16. júní. Brúin er hluti af hringveginum og lokanir á henni hafa töluverð áhrif á ferðaþjónustu. Til stendur að mála brúna, það er framhald viðhaldsvinnu frá því í fyrrasumar. Þá var brúin lokuð í tvær vikur.Gunnar M. Guðmundsson, forstjóri Sérleyfisbíla Akureyrar, segist skilja að sinna þurfi viðhaldi á vegum og brúm landsins en það sé hægt að gera hlutina betur: „Það sem ég gagnrýni mest er hvað er stuttur fyrirvari á þessu og það sé ekki hægt að vinna þetta hraðar. Hrúga fleiri mönnum í þetta og gera þetta á styttri tíma. Það eru náttúrulega bílar á fullu í ferðum hringinn í kringum landið,“ segir Gunnar M Guðmundsson, forstjóri SBA. VERKIÐ UNNIÐ EINS HRATT OG MÖGULEGT ER G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Ve
Gagnrýna skamman fyrirvara fyrir lokun yfir Jökulsá á Fjöllum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd