Blikur eru á lofti í heimi fjölmiðla og fréttamennsku í henni veröld, þar sem valdhafar, glæpagengi, stórfyrirtæki, dóms- og löggæslustofnanir vinna leynt og ljóst að því að skerða tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Um þetta vitna nýjustu skýrslur UNESCO, menningar- og menntamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, alþjóðlegu lýðræðisrannsóknarstofnunarinnar V-Dem í Gautaborg og samtakanna Blaðamenn án landamæra, sem fjallað var um í Speglinum í liðinni viku.Góðu fréttirnar fyrir okkur eru þær að Ísland færist upp um 5 sæti á nýútgefnum lista hinna síðastnefndu yfir fjölmiðlafrelsi í ríkjum heims, úr sautjánda sæti í það tólfta. Þrátt fyrir það telst fjölmiðlafrelsi á Íslandi einungis „viðunandi" í bókum samtakanna, en „gott" hjá hinum Norðurlöndunum fjórum. Sem fyrr eru Norðmenn á toppnum, Holland e