Við leik og störf í sólinni

Bjart er yfir suðvesturhorninu í dag og þess mátti sjá merki í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal i Reykjavík þegar Ragnar Visage ljósmyndari átti þar leið um.Starfsmenn garðsins unnu að vorstörfunum, þrifu bæði selatjörn og hreinsuðu beð. Gestir garðsins gengu þar um í sólinni.Spáð er allt að 17 stiga hita á suðvesturhorninu í dag.Útlit er fyrir ágætisveður víða á morgun, fremur norðaustlæga eða breytilega átt og allt að 15 stiga hita. Íbúar norðaustanlands fara þó hugsanlega á mis við góða veðrið því þar er spáð þokusúld eða lítilsháttar rigningu. Annars staðar verður þurrt að mestu en líkur á stöku skúrum á Suðurlandi.Á föstudag breytist veður nokkuð og er þá útlit fyrir austlæga átt með súld eða dálítilli rigningu. Þó verður lengst af úrkomulítið norðanlands.
Við leik og störf í sólinni
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd