Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hafa hafið formlegar viðræður um myndun meirihluta í Hafnarfirði. Flokkarnir voru í meirihlutasamstarfi síðustu tvö kjörtímabil.Í tilkynningu frá oddvitum framboðslistanna, þeim Orra Björnssyni og Valdimar Víðissyni segir samstarf flokkanna hafi verið farsælt og vinna við meirihlutasáttmála hefjist nú þegar.Skipting helstu embætta verður ákveðin í kjölfarið, en markmiðið er að ljúka myndun nýs meirihluta fyrir helgina og kynna niðurstöðurnar þá.