Fylgjast með hvort moskítóflugur láti sjá sig

Náttúrufræðistofnun Íslands fylgist með stöðu moskítuflugna hér á landi eftir að þær fundust í fyrsta skipti síðasta haust. Í október fundust moskítóflugur í Kjós og sagði Matthías Alfreðsson, skordýrafræðingur, að flugan væri komin til að vera. Í nóvember fannst önnur tegund í hesthúsi á Suðurlandi.Nú þegar farið er að vora var Matthías inntur eftir því hvort frekari fréttir væru af flugunum. „Skordýratímabilið er nýhafið og hefur farið hægt af stað svo upplýsingar eru enn takmarkaðar,“ segir Matthías en bætir við að frekari gagnaöflun fari fram yfir sumarið. „Vonandi munu niðurstöðurnar skýra stöðuna betur þegar líður á tímabilið.“
Fylgjast með hvort moskítóflugur láti sjá sig
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd