Orðræða um fólk á flótta fer harðnandi og byggir oft á rangfærslum. Þetta segir Íslandsdeild Amnesty International og hrindir í dag af stað herferðinni Mannúðin mun sigra – Virðum réttindi fólks á flótta. Í tilkynningu frá félaginu segir að herferðinni sé ætlað að bregðast við sífellt harðari orðræðu sem beinist að hópi sem sé þegar í viðkvæmri stöðu.Í könnun Maskínu sem gerð var fyrir Íslandsdeild Amnesty International kemur fram að 87% aðspurðra landsmanna telji að fólk sem flýr stríð og ofsóknir eigi að geta leitað hælis í öðrum löndum. Á sama tíma telja 62% að of margir fái vernd á Íslandi.Árið 2025 sóttu 1.748 um alþjóðlega vernd á Íslandi sem samsvarar 0,0015% af þeim rúmlega 117 milljónum sem eru á flótta á heimsvísu, samkvæmt tilkynningu Amnesty. Í heildina var 1.151 umsókn afgreid