Sjö stjórnendur hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, hafa nýtt kauprétti að samtals 12.825.000 nýjum hlutum í félaginu, fyrir alls 83,1 milljón króna. Stærsti eigandi félagsins, Bóksal, hefur þegar keypt alla hlutina af stjórnendunum fyrir alls 194,4 milljónir króna. Þá nýttu sex aðrir kaupréttarhafar kauprétti að 5.737.500 hlutum í félaginu en ekki liggur fyrir hvort þeir hafi selt hluti sína, þótt telja verði það líklegt.