Stjórnarmaður í Tilveru, samtökum fólks um ófrjósemi, fagnar því að frjósemisvernd verði hluti af hefðbundnum sjúkdómatryggingum.Tryggingafélagið Vörður hefur bætt frjósemisvernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar sínar. Hún felst bæði í fjárhagslegum bótum vegna meðferða og aðgengi að samtalsmeðferð ef áföll eða erfiðar aðstæður koma upp í ferlinu.Talið er að einn af hverjum sex glími við ófrjósemi.„Við vildum mæta þessum hópi sem fer sífjölgandi og þetta er líka í fyrsta sinn á Íslandi sem svona tryggingavernd nær yfir frjósemismeðferðir. Við sáum að það er þörf og hún fer sívaxandi,“ segir Þórdís Lind Leiva, forstöðumaður líf- og heilsutrygginga hjá Verði.Jenny Elisabet Eriksson, stjórnarmaður í Tilveru, samtökum um ófrjósemi, segir það mjög algengt að fólk fari í frjósemismeðferðir og