Íbúar Vilníusar leituðu skjóls vegna yfirvofandi drónaárásar

Varnarmálaráðuneyti Litáens varaði íbúa höfuðborgarinnar Vilníusar í morgun við drónaárás. Samgöngur stöðvuðust og almennir borgarar leituðu skjóls í neðanjarðarbyrgjum. Slíkar viðvaranir hafa fært í vöxt í Eystrasaltsríkjunum undanfarna mánuði eftir að Úkraínumenn settu aukinn þunga í árásir í grennd við Sánkti Pétursborg í Rússlandi, skammt frá Eistlandi og Finnlandi.Þetta er hinsvegar í fyrsta sinn frá innrás Rússa í Úkraínu fyrir fjórum árum að íbúar í Evrópusambandsríki og aðildarríki NATO eru hvattir til að leita í skjól vegna yfirvofandi árásar, forseti landsins þar með talinn, forsætisráðherrann og þingmenn.Stjórnmálaleiðtogar voru fluttir í neðanjarðarbyrgi í kjölfar drónaviðvörunar í fyrra en ekki almenningur.Viðvörunin var gefin út í klukkan 7:20 í morgun að íslenskum tíma með s
Íbúar Vilníusar leituðu skjóls vegna yfirvofandi drónaárásar
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd