Seðlabankinn hækkaði í morgun meginvexti um 0,25 prósent og verða þeir nú 7,75 prósent. Allir nefndarmenn peningastefnunefndar studdu ákvörðunina. Það gerði bankinn þrátt fyrir að hann spái minni hagvexti, auknu atvinnuleysi og meiri slaka í þjóðarbúinu en áður. Venjulega myndi slík þróun draga úr þörf fyrir hærri vexti. Skýring bankans er hins vegar sú að verðbólguvandinn hafi versnað meira en...