„Þarna er enn landris í gangi, sama staða og verið hefur allan tímann,“ segir Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, við Morgunblaðið þegar hann er spurður fregna af eldstöðinni undir Sundhnúkum á Reykjanesi þar sem tólf eldgos hafa orðið síðustu árin, þar af níu í Sundhnúkakerfinu svonefnda.