Samningamenn Evrópuþingsins og ráðherraráðs Evrópusambandsins náðu í nótt samkomulagi um innleiðingu Turnberry-samningsins svokallaða um viðskiptakjör milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins.Samingurinn var handsalaður í júlí í fyrra á fundi þeirra Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Donalds Trump Bandaríkjaforseta, en tafir hafa orðið á innleiðingu hans; innan aðildarríkjanna var víða óánægja með að Evrópusambandið hefði fallist á flatan fimmtán prósenta toll á langflestar vörur frá aðildarríkjunum. Framferði Bandaríkjastjórnar, til dæmis hvað varðar Grænland og Danmörku, varð einnig til þess að tefja framgang þessa máls á Evrópuþinginu.Töfin varð að lokum til þess að fyrr í þessum mánuði hótaði Trump tollahækkunum, meðal annars á evrópskar bifreiðar, yr