Framleiðsla í fiskeldi jókst um sautján prósent í fyrra og hefur aldrei verið meiri. Alls voru framleidd 64.417 tonn af eldisfiski. Lax var langstærstur hluti þess, 58.717 tonn. Útflutningsverðmæti jókst ekki í samræmi við aukna framleiðslu. Fiskeldisafurðir voru fluttar út fyrir 53,4 milljarða króna í fyrra. Það er einu prósenti minna en árið áður þrátt fyrir að magnið sem var flutt út hafi aukist um tólf prósent.Fiskeldi á Vestfjörðum.RÚV / Kveikur