430 aðgerðarsinnar af bátum Global Sumud Flotilla eru í haldi Ísraelsmanna eftir að Ísraelsher stöðvaði skip aðgerðarsinna á leið til Gaza á mánudaginn. Þar af eru að minnsta kosti 12 írskir ríkisborgarar og 11 Kanadamenn.Fólkið var um borð í nokkrum skipum sem voru á leið til Gaza með hjálpargögn þegar skip á vegum ísraelska hersins stöðvaði för þeirra. Búið er að flytja fólkið um borð í ísraelsk skip og verið er að flytja það til Ísraels.Ein þeirra handteknu, Dr Margaret Connolly, er systir írska forsetans Catherine Connolly, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Forsætisráðherra Írlands, Micheál Martin, sagði í samtali við BBC að fólk eigi rétt á að mótmæla og taka þátt í aðgerðum sem beina sjónum að skelfilegu mannúðarástandi á Gaza. Hann sagði að Írland ætli að taka þetta málefni