Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði að samskipti milli Rússlands og Kína hefðu nú náð áður óþekktum hæðum. Þetta kom fram í myndbandi af Pútín ræða við Xi Jinping, forseta Kína, á fundi þeirra í Beijing í dag á rússneskum fjölmiðli.Pútín sagði jafnframt að samskipti landanna væru fyrirmynd fyrir yfirgripsmikil samskipti og stefnumótandi samvinnu. Kínaforseti fagnaði einnig traustu sambandi þjóðanna. Hann sagði að þjóðunum hefði tekist jafnt og þétt að styrkja traust sín á milli og samvinnu með seiglu sem væri óhagganleg þrátt fyrir ýmsa örðugleika og mótlæti.Xi ræddi einnig um stöðu mála í Mið-Austurlöndum við Pútín. Hann sagði að frekari átök væru óráðleg og það væri mikilvægt að ná vopnahléi sem fyrst og halda áfram samningaviðræðum, samkvæmt kínversku fréttastofunni Xinhua.