Írar og Kanadamenn í haldi Ísraela

Að minnsta kosti 12 írskir ríkisborgarar og 11 Kanadamenn eru í haldi Ísraela eftir að Ísraelsmenn stöðvuðu skip aðgerðarsinna á leið til Gaza á mánudaginn. Fólkið var um borð í skipum aðgerðarhópsins Global Sumud Flotilla og var á leið til Gaza með hjálpargögn þegar skip á vegum ísraelska hersins stöðvaði för þeirra.Ein þeirra handteknu, Dr Margaret Connolly, er systir írska forsetans Catherine Connolly, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Forsætisráðherra Írlands, Micheál Martin, sagði í samtali við BBC að fólk eigi rétt á að mótmæla og taka þátt í aðgerðum sem beina sjónum að skelfilegu mannúðarástandi á Gaza. Hann sagði að Írland ætli að taka þetta málefni fyrir á vettvangi Evrópusambandsins. VILL AÐ FÓLKINU VERÐI SLEPPT STRAX Þá hefur írski utanríkisráðherrann Helen McEntee
Írar og Kanadamenn í haldi Ísraela
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd