Anna Claessen, markþjálfi, einkaþjálfari og skemmtikraftur, segir mbl.is frá þrautagöngu sinni með Crohns-sjúkdóm í tilefni þess að í dag var Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi. Crohns er ólæknandi og þarf sjúklingurinn í raun að kynnast sjálfum sér upp á nýtt.