Vladímír Pútín Rússlandsforseti kom í dag til tveggja daga heimsóknar í Beijing þar sem hann fundar með Xi Jinping forseta Kína. Með Pútín í för eru ráðherrar og stjórnendur stórfyrirtækja í Rússlandi og er talið að viðskipti, orkusamstarf og alþjóðastjórnmál verði efst á baugi á fundunum.Heimsóknin kemur aðeins nokkrum dögum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti heimsótti Beijing. Samskipti Kína og Rússlands hafa styrkst verulega frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu og sættu refsiaðgerðum Vesturvelda í kjölfarið. Kína hefur síðan orðið einn mikilvægasti útflutningsmarkaður Rússa, sérstaklega fyrir olíu og gas.Pútín lýsti því yfir fyrir brottför að hann væri sannfærður um að þeir forsetarnir myndu efla tengsl ríkjanna á ýmsan máta.Albert Jónsson, sérfræðingur í utanríki