Grindvíkingar hafa í dag fagnað Íslandsmeistaratitli karla í körfubolta sem vannst í gærkvöldi eftir sigur á Tindastóli á Sauðárkróki. Grindavík vann með 109 stigum gegn 102 í fjórða úrslitaleik liðanna, eftir að hafa unnið fyrstu tvo leiki einvígisins.Leikmenn liðsins komu með bikarinn til Grindavíkur á sjöunda tímanum í langri bílalest. Bæjarbúar fjölmenntu og fögnuðu körfuboltahetjunum þegar þeir komu inn í bæinn. Síðan var fögnuður í íþróttahúsinu sem á líklega eftir að standa langt fram eftir kvöldi.Þetta er í fjórða sinn sem Grindavík vinnur titilinn en síðast unnu þau árið 2013. Félagið vann sinn fyrsta meistaratitil árið 1996.Grindvíkingar hafa í dag fagnað Íslandsmeistaratitli karla í körfubolta sem vannst í Skagafirði í gærkvöldi. Leikmenn liðsins komu með bikarinn til Grindavíku