Göngufótbolti er ný íþróttagrein sem er nú verið að kynna víða um land en enginn markvörður er í fótboltanum. Bannað er að hlaupa og stranglega bannað er að tækla og tudda andstæðinginn.Rúnar Már Sverrisson, þjálfari hjá Þrótti í Reykjavík, sem á líka sæti í grasrótarnefnd Knattspyrnusambands Íslands, er nú á ferð um landið til að kynna nýju íþróttagreinina, sem er víða mjög vinsæl í nágrannalöndunum.Hann segir göngubolta markvissa heilsueflingu fyrir þá sem vilja ekki keppa til að forðast félagslega einangrun. Gönguboltinn sé líka upplagður fyrir stjórnmálamenn, aldraða og fatlaða svo einhver dæmi séu nefnd.„Þú mátt ekki lyfta báðum fótum samtímis, það er skilgreiningin. Síðan máttu ekki tudda og jafnvel fagna mörkum andstæðinganna, það er hluti af því, þetta er svona samfélagsfyrirbrigði