Bannar Skattinum að rann­saka Trump og fjöl­skyldu

Starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna bætti óvænt í dag við samkomulag dómsmálaráðuneytisins við Donald Trump, forseta, sem tilkynnt var í gær. Auk þess að stofna um tvö hundruð milljarða sjóð til að deila út skaðabótum til bandamanna Trump, felur samkomulagið einnig í sér að Skattinum hefur verið alfarið meinað að rannsaka eða grípa til aðgerða gegn Trump, fjölskyldu hans eða fyrirtæki vegna gamalla skattskýrslna þeirra sem munu hafa verið til rannsóknar um árabil.
Bannar Skattinum að rann­saka Trump og fjöl­skyldu
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd