Telur að rafbyssan hafi ekki orsakað að kviknað hafi í manninum

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir afar ólíklegt að rafbyssa, sem lögregla beitti á mann sem hafði hellt yfir sig bensíni, hafi orðið til þess að það kviknaði í honum.„Við getum ekki séð það það sé svoleiðis. Drægnin var ekki með þeim hætti að við teljum það mögulegt. Svo vil ég líka bæta við að rafvarnarvopni er að sjálfsögðu aldrei beitt nema meðalhófs sé gætt og að það sé talið vera aðstæðunum fyrir bestu,“ segir Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum.Maðurinn, sem lögregla hafði afskipti af í gær, var fluttur á Landspítala töluvert brenndur um allan líkamann. Sjónarvotti, sem tekið hafði atvikið upp á síma sinn, var gert að eyða myndefninu. Gunnar Ingi Jóhannsson hæstaréttarlögmaður sagðist í hádegisfréttum telja að með því hefði lögregla farið út fyrir sínar valdhe
Telur að rafbyssan hafi ekki orsakað að kviknað hafi í manninum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd