Það má segja að Íslendingar þekki sketsaformið vel og er það að stórum hluta Áramótaskaupinu að þakka en ár hvert sameinast þjóðin yfir sketsaþætti sem gerir grín að líðandi stundu.Þá á Spaugstofan sömuleiðis stóran þátt í grínsögu Íslendinga en í árafjöld buðu þeir upp á vikulegan grínþátt þar sem vikan var gerð upp á spaugilegan hátt sem getur verið heilandi fyrir þjóðina. „Grínið getur verið góð úrvinnsla á málefnum líðandi stundar,“ sögðu sérfræðingar þáttarins.Þá barst talið að Fóstbræðrum sem mörkuðu sömuleiðis djúp spor í grínmenningu landans. „Fóstbræður menntuðu þjóðina í öðruvísi gríni,“ sagði Pálmi Freyr og Birna tók undir með honum.Þú getur hlustað á áhugaverða umræðu um sketsa og grín í spilaranum hér að ofan.Miðstöðin er nýr þáttur um dægurmenningu á RÚV öll fimmtudagskvöld.