Pútín í opinberri heimsókn til Beijing

Pútín Rússlandsforseti kom í tveggja daga heimsókn til Xi Jinping forseta Kína í dag. Nokkrir dagar eru síðan Bandaríkjaforseti heimsótti Beijing. Með Pútín í för eru ráðherrar og stjórnendur stórfyrirtækja í Rússlandi. Kínverjar og Rússar hafa eflt samskiptin eftir að Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu og hafa sætt refsiaðgerðum Vesturvelda. Eftir það varð Kína enn mikilvægari útflutningsmarkaður fyrir Rússland en þangað flytja þeir stóran hluta af olíuframleiðslu sinni. Pútín lýsti því yfir fyrir brottför að hann væri sannfærður um að þeir forsetarnir myndu efla tengsl ríkjanna á ýmsan máta. Pútín við komuna til Beijing í dag.EPA / VLADIMIR SMIRNOV / SPUTNIK / KREMLIN POOL
Pútín í opinberri heimsókn til Beijing
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd