Pútín lentur í Peking

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti í dag í Peking í Kína, þar sem hann mun funda með Xi Jinping, kollega sínum. Fundarhöldin munu standa yfir í tvo daga og ætla forsetarnir, samkvæmt Kreml, að ræða efnahagssamvinnu og sameiginlega hagsmuni ríkjanna. Stutt er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti var í opinberri heimsókn í Kína en talsmaður Pútíns segir það ótengt heimsókn Pútíns.
Pútín lentur í Peking
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd