„Ég hef miklar áhyggjur af umfangi og útbreiðsluhraða veirunnar,“ sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um ebólufaraldurinn sem nú geisar í Afríku. Óttast er að mun fleiri séu smitaðir en búið sé að staðfesta, auk þess sem stofnunin telur ljóst að faraldurinn verði ekki kveðinn niður á næstu tveimur mánuðum hið minnsta. Þessi faraldur gæti því orðið mjög skæður.Staðfest dauðsföll vegna yfirstandandi faraldurs eru 131, öll nema eitt í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó þar sem hann á upptök sín. 513 tilfelli til viðbótar eru staðfest. Útbreiðslan er slík að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lýst faraldrinum sem alþjóðlegu neyðarástandi og kallað saman neyðarfund. Stofnunin hefur þegar sent mörg tonn af hjálpargögnum, þar á meðal sótthreinsunarbúnaði og tjö