Southampton vísað úr umspilinu vegna njósna

Hneyksli skekur nú enskan fótbolta. Southampton hefur verið vísað úr umspilinu um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð vegna njósna, en liðið var komið í úrslitaleik umspilsins.Greinandi á vegum Southampton var staðinn að því að mynda æfingu Middlesbrough fyrir undanúrslitaleik liðanna 7. maí síðastliðinn. Boro kvartaði daginn eftir og enska deildin (EFL) tók málið fyrir. Í kjölfarið var bætt við ásakanirnar fleiri sams konar brotum Southampton frá í desember í fyrra og apríl í ár.Umfjöllun BBC um málið má lesahér og svo var fjallað um málið í Sportrásinni síðastliðinn sunnudag og má hlusta á þá umfjöllun hér.Nathan Wood, leikmaður Southampton. Hann er saklaus af njósnum en missir, eins og aðrir leikmenn liðsins, af sæti í úrvalsdeildinni.EPA / VINCE MIGNOTT
Southampton vísað úr umspilinu vegna njósna
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd