Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, segir að setja þurfi skýr mörk í hælisleitendamálum í Reykjanesbæ. Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn eru nú í meirihlutaviðræðum í sveitarfélaginu.Báðir flokkar voru með á stefnuskrá sinni að breyta þyrfti því hvernig staðið væri að móttöku hælisleitenda í sveitarfélagið. Vilhjálmur segir að lögð verði áhersla á að koma ekki á fleiri búsetuúrræðum og að íbúar sveitarfélagsins fylgi þeim reglum og siðum sem settir eru.Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, segir að sveitarfélagið taki ekki á móti fleiri hælisleitendum verði meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks myndaður, flokkarnir hafi báðir talað fyrir átaki í málaflokknum.Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, segir ljóst að samhljómur sé