Áætlað að aðildarviðræður við ESB kosti 1,9 milljarða

Samþykki Íslendingar að hefja aðildarviðræður við Evrópusambdið á ný er talið að þær muni taka um 1,5 til 2 ár og muni kosta um 1,9 milljarða króna. Þetta kemur fram í meirihlutaáliti utanríkisnefndar sem afgreiddi þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um ESB-viðræður úr nefnd í gær. Í svari utanríkisráðuneytisins til nefndarinnar segir þó að kostnaður vegna viðræðna sé háður nokkurri óvissu þar sem erfitt sé að segja nákvæmlega til um hversu langan tíma þær taka.Það kostnaðarmat sem ráðuneytið lagði fram til nefndarinnar byggist á því að viðræður taki um tvö ár, þ.e. á tímabilinu 1. september 2026 til ársloka 2028.Seinni umræða um um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er á dagskrá Alþingis á morgun. Þingfundurinn hefst klukkan 15 og þetta er
Áætlað að aðildarviðræður við ESB kosti 1,9 milljarða
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd