Hreindýrstarfur tók sundsprett í Eskifirði

Sævar Guðjónsson, sem rekur ferðaþjónustuna á Mjóeyri við Eskifjörð og hefur meðal annars starfað sem hreindýraleiðsögumaður, rak upp stór augu þegar hreindýrstarfur synti út í Eskifjörð í gær. Sævar telur að dýrið hafi verið á sundi í um klukkutíma, hann segist aldrei hafa séð slík sundtilþrif hjá hreindýrum.„Ég hef ekki séð þetta áður, þetta var nátturulega alveg stórmagnað að fylgjast með þessu, það er aftur á móti alveg þekkt að hreindýr syndi.“Hreindýr eru öflug sunddýr. Feldur þeirra heldur vatni vel frá og fljóta því dýrin einstaklega vel. Sævar segir að klaufarnar virki líkt og sundfit þegar í vatnið er komið.Staðarhaldari á Mjóeyri rak upp stór augu þegar hreindýrstarfur stakk sér til sunds í Eskifirði eftir að hafa orðið fyrir styggð. Dýrið tók sér drjúgan sundsprett. SKAUT SKE
Hreindýrstarfur tók sundsprett í Eskifirði
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd