Leita manns sem elti unga stúlku

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var fyrr í dag tilkynnt um að maður hefði elt unga stúlku að skólalóð í Hafnarfirði, mögulega vopnaður hnífi.Mannsins hefur verið leitað í dag og er hann enn ófundinn, að því er segir í tilkynningu.Lögreglan hefur notið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við leitina.Í tilkynningu segir að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.DV greindi frá því fyrr í dag að miðlinum hefði borist ábending um að maður hefði hlaupið á eftir stúlkum með hníf í hendi nálægt Lækjarskóla í Hafnarfirði. Þar var haft eftir aðstoðaryfirlögregluþjóni að tilkynning um atvikið hefði borist á öðrum tímanum eftir hádegi.
Leita manns sem elti unga stúlku
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd